Akrýl og olíu málning á striga
Gluggaveður
Gluggaveður er málað eftir ljósmynd sem ég tók í vetur. Ég vann út frá réttum hlutföllum en hélt mig vísvitandi frá fullu raunsæi. Verkið kannar mörkin milli þess að segja og segja ekki, hvernig hægt er að kalla fram hlýju, kulda og áþreifanlega skynjun hjá áhorfanda með litum einum saman.